Jæja krakkar, þá erum við komnar aftur á krókinn. vúhú fokk!
oh það var svo gaman úti :] ,,Þegar við vorum komnar til DK þá var tekið lest í sitt hvora áttina. það var bara sagt við mig að lestin færi eftir 5 mín og ég hljóp eins og fæturtoguðu og upp í fyrstu opnu lestina sem ég sa, og ég heppnisgrís hitti á þá réttu 
Var ekki komin í Århus fyrr en um hálf 2 ;/ en þar tók Laufey á móti mér með bros á svip 
Síðan morguninn eftir var farið á strikið þarna í Århusum og voru fullt af fottum búðum þar 3 H&M og svona flotteheit,
keypti nú ekki mikið þann dag en það var mikið hangið í strætó þann daginn eins og alla hina;p Laufey er strætó fíkill. um kvöldið var farið á kaffihús og þar hittum við íslendinga, Gulla og co. og fórum við með þeim á skemmtistað sem heitir Nine,, ógeðslega flottur staður með diskóljósum og eitthvað svona djammlegt. síðan var bara tekið strætó heim.
Laugardaginn var vaknað snemma og farið meira að versla og í eitthvað moll og eitthvað svona skemmtilegt, laufey var held ég orðin hálf þreytt á búðarhlaupunum í mér
æj hun er æði. um kvöldið var farið í eitthvað teiti hjá bekkjafélögum hennar, þar voru allir að sulla eitthvað og kenndi ég þeim að drekka íslenskt brennivín
tóku þau bara vel í það. já það var bara allt í góðu og fínu allt svona flott. mmm, síðan var bara farið heim að sofa.

Laufey&Lena ;*** <3
Sunnudaginn var farið í eitthvað svona útlendingahverfi geggjað mikið af flottu og ódýru dóti.. keypti mér brúnarlinsur og Laufey fékk mig í það að smakka eitthvað Kebab eða bap eða eitthvað svona kjöt í einhverju með einhverju æj það var svo sem gott 
mmm, hvað á ég að segja meira um þennan dag? þetta var bara fínn dagur spjölluðum mikið og höfðum gaman.
síðan á mánudaginn var farið að koma sér heim, mamma hennar laufeyjar keyrði mér á lestarstöðina klukkan 6 um morguninn og haldið þið ekki að það hafi ekki verið tekið kortið mitt bara sagt að ég væri blankur aumingi að það væri ekkert inn á þvi, þannig mamma hennar laufeyjar lánaði mér fyrir lestinni en ég missti af henni útaf þessu veseni þannig ég beið á stöðinni í klukkutíma eftir næstu lest. jæja og síðan hitti ég brynju mina halftima fyrir flugið því þetta kom líka fyrir hana og hun missti af sinni lest :'
æj við erum kjánar.


Þetta var æðisleg ferð og þetta gerum við Brynja pottþett aftur. :*
Núna voru Hjalli og Signý rassgat að fara frá okkur, þau voru á leikritinu hjá skólanum og sögðu þau að það hefði bara verið þokkalegt 
Um helgina verður bara unnið
eins gott að gera það, það bíður min feitur símareikningur um mánaðarmótin. talaði svo lítið mikið við hann danna minn á meðan ég var úti, saknaði hans svo mikið
jæja Þa held ég að þetta sér orðið nokkuð gott blogg takk 
Bless 

Brynja og ég að pósa í lyftunni eins og alltaf 

hahah pínu misheppnað.

hehehe signý sætust með ljósalokka :'